Ár hvert fer fram glæsilegt kvennakvöld Þórs og KA og afhenti kvennakvöldsnefndin kvennaliðum félaganna veglega styrki á mánudaginn í leikhléi í leik Þórs/KA og Breiðabliks í Boganum. Hver deild fékk í ár styrk að upphæð 1,5 milljónir sem kemur sér ansi vel í rekstri liðanna okkar.
Að Kvennakvöldinu standa kvennaliðin fjögur í boltaíþróttunum, knattspyrnulið Þórs/KA, handknattleikslið KA/Þórs, körfuknattleikslið Þórs og blaklið KA. Nefndarkonur Kvennakvöldsins mættu í Bogann á mánudag og afhentu fulltrúum þessara liða afraksturinn af kvöldinu sem haldið var í byrjun maí. Öllum sem að Kvennakvöldinu komu eru hér með færðar bestu þakkir fyrir stuðninginn. Hann er ómetanlegur.
Í ávarpi frá nefndinni segir meðal annars. „Við þetta tilefni vill Kvennakvöldsnefndin þakka öllum þeim sem koma að kvöldinu, styrktaraðilum, sjálfboðaliðum og öllum þeim frábæru konum sem mættu á viðburðinn, fyrir að gera þetta kvöld ógleymanlegt og að styrkja allar þessar frábæru íþróttakonur sem skipa þessi lið.“
Við viljum þakka þeim sem að kvöldinu koma kærlega fyrir þeirra frábæru og ómetanlegu vinnu. Það er alveg klárt að þessi styrkur mun hjálpa mikið til við að efla og styðja enn frekar við hið flotta starf sem unnið er í kvennaíþróttum á Akureyri.
Kvennakvöldsnefndin er þannig skipuð: