Vegfarendur kanni færð og veður áður en lagt er stað

Veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun en búist er við stormi norðvestantil á landinu og á miðhálendinu í nótt og fram eftir morgundegi. Þá biður Vegagerðin vegfarendur að kanna færð og veður áður en lagt er af stað. Varað er við óveðri á sunnanverðu Snæfellsnesi - og flughálku í Langadal í Húnavatnssýslu.  

Á Norðurlandi vestra er víða hálka - raunar flughálka í Langadal - og sumstaðar skafrenningur. Á Norðaurlandi eystra er víða éljagangur og hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Hálkublettir eru í uppsveitum á Suðurlandi. Á Vesturlandi er hálka á Bröttubrekku, Vatnaleiði og á norðanverðu Snæfellsnesi. Snjóþekja er á Fróðárheiði en hálkublettir víðar. Óveður er í Staðarsveit.  Á Vestfjörðum er víða einhver éljagangur, og hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Á Austurlandi er hálka á Möðrudalsöræfum, Jökuldal og Fjarðarheiði en hálkublettir eru á flestum öðrum leiðum. Á Suðausturlandi eru hálkublettir á kafla frá Mýrdalssandi og austur fyrir Lómagnúp.

Veðurspá: Norðan 13-18 m/s og snjókoma, en úrkomulaust að kalla sunnantil á landinu. Heldur hvassara á stöku stað. Bætir í vind og úrkomu seint í kvöld, norðaustan hvassviðri eða stormur í nótt og fram eftir morgundegi, áfram hvassast norðvestantil með snjókomu fyrir norðan og austan. Hiti um eða rétt undir frostmarki víðast hvar.

Nýjast