Vegagerðin óskar tilboða í rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í rekstur Hríseyjarferju fyrir árin 2023 til 2025. Í útboðinu …
Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í rekstur Hríseyjarferju fyrir árin 2023 til 2025. Í útboðinu áskilur Vegagerðin sér rétt til að fjölga/fækka ferðum um allt að 20% á samningstímanum. Hríseyingum líst illa á það og vilja þetta ákvæði út úr útboðinu. Bæjarráð Akureyrar hefur tekið undir með eyjaskeggjum. Mynd Unnur Sæmundsdóttir

„Almenn sátt ríkir um núverandi áætlun og getur breyting á áætlun eða fækkun ferða haft veruleg áhrif á skilyrði til búsetu í Hrísey og á öryggi íbúanna,“ segir í bókun bæjarráðs Akureyrar. Þar er bæjarráð að taka undir með hverfisráði Hríseyjar varðandi nýtt útboð á rekstri Hríseyjarferjunnar Sævars en í því áskilur Vegagerðin sér rétt til að fjölga/fækka ferðum um plús mínus 20%  á samningstímanum sem er til ársins 2025.

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í rekstur Hríseyjarferju fyrir árin 2023 til 2025, sérleyfi fyrir Vegagerðina á ferjuleiðinni Hrísey – Árskógsandur – Hrísey. Innifalið í því er að annast fólks- og vöruflutninga til og frá Hrísey. Ferjan Sævar sem er í eigu Vegagerðarinnar verður notuð í verkefnið. Samningstími er þrjú ár með möguleika á framlengingu allt að 2 sinnum, 1 ár í senn. Skila á inn tilboðum fyrir kl. 14 þriðjudaginn 29. nóvember 2022.

Bæjarráð segir Hríseyjarferjuna þjóðveg eyjarskeggja og alla þeirra sem eyjuna heimsækja. Fer ráðið fram á að ferjuáætlun standi óbreytt og með möguleika á upphringiferðum líkt og verið hefur, „og að réttur Vegagerðarinnar til að fækka ferðum um allt að 20% á samningstíma verði tekinn úr útboðinu.“

Á fundi hverfisnefndar Hríseyjar var fjallað um þann rétt sem Vegagerðin áskildi sér í útboðinu um að fjölga/fækka ferðum um plús mínus 20% á samningstímanum. Einnig að stjórnvöldum væri heimilt að fækka eða fjölga ferðum eða segja upp einstaka leið með 6 mánaða fyrirvara. Í núverandi vetraráætlun er gert ráð fyrir 6 til 8 ferðum daglega en 8 til 10 ferðum yfir sumarið, samtal 2.840 ferðir.

Almenn sátt um núverandi áætlun

Segir hverfisráðið almenna sátt ríkja um núverandi áætlun ferjunnar og breyting á áætlun eða fækkun ferða geti haft verulega áhrif á skilyrði til búsetu í Hrísey. „Niðurfelling á ákveðnum ferðum getur haft þau áhrif að ómögulegt yrði fyrir íbúa að sækja atvinnu í landi ásamt takmörkun á möguleikum íbúa að stunda félagsstarf, íþróttastarf, sækja menningarviðburði,“ segir í bókun hverfisnefndar. „Ferjan er okkar þjóðvegur sem þarf að vera opinn með tíðum og öruggum ferjusiglingum. Við samþykkjum því ekki að í kjölfar þeirrar uppbyggingar sem átt hefur sér stað í Hrísey undanfarin ár verði ferðum ferjunnar fækkað.“


Athugasemdir

Nýjast