Sjúklingar voru fluttir í 1.433 skipti en í önnur skipti var um að ræða aðstoð (tveir bílar í sama verkefni), afgreitt á staðnum eða útkall afturkallað. Farið var í 494 sjúkraflug á árinu 2008 og er það nánast sami fjöldi og í fyrra en þá voru þau 493. Fluttir voru 525 sjúklingar í þessum ferðum sem er minna en á síðasta ári.