Framfærslugrunnurinn var kr. 101.626 en verður kr. 118.251 frá og næstu mánaðamótum. Einnig var á fundi félagsmálaráðs í vikunni, rætt um fjárveitingu til námstyrkja og samþykkti ráðið að veita 6 milljónum króna til námsstyrkja á árinu 2009.
Þá var á fundi félagsmálaráðs lagt fram minnisblað frá húsnæðisfulltrúa um um stöðu biðlista eftir leiguíbúðum hjá Akureyrarbæ um áramót. Á biðlista eftir leiguíbúð um áramót voru 99 umsækjendur, þar af voru 11 að sækja um flutning í hentugra húsnæði.