09. febrúar, 2010 - 22:28
Fréttir
Á síðasta fundi framkvæmdaráðs Akureyrar kynntu forstöðumaður umhverfismála, Jón Birgir Gunnlaugsson og deildarstjóri
framkvæmdadeildar, Helgi Már Pálsson, þá vinnu sem búin er við undirbúning útboðs á sorphirðu og sorpeyðingu.
Tímasetningar útboðs liggja nú fyrir, þar sem fram kemur að tilkynning á EES svæðið verður birt á morgun, 10. febrúar
og stefnt er að opnun tilboða 7. apríl nk.