Í prófun er nýr búnaður hjá Símanum sem gerir kleift að flytja ADSL og Sjónvarpsmerkið á lengri línuleiðum. Reikna má með að sá búnaður verði tekinn í notkun á nýju ári. Með ADSL tengingu fæst öruggt netsamband og hægt er að velja áskriftarleið eftir netnotkun og hraðinn er allt að 12 Mb/sek. Með Sjónvarpi Símans opnast aðgangur að öllum íslensku sjónvarpsstöðvunum og yfir 60 erlendum stöðvum í bestu myndgæðum. Með fjarstýringunni fæst aðgangur að bíói heima í stofu þar sem leigja má bíómyndir og fá að auki frítt efni, segir á vef Eyjafjarðarsveitar.