UPPFÆRSLA.....Grenivíkurvegur - skriður

Umfang skriðunnar er verulegt eins og sjá má á þessari mynd
Umfang skriðunnar er verulegt eins og sjá má á þessari mynd

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur birt uppfærslu um stöðu mála á Grenivikuvegi en eins og flestum ætti að vera kunnugt féll skriða á veginn snemma í gærmorgun.

Í þeirri uppfærslu segir:

,,Eftirlitsmenn frá Veðurstofu fóru á vettvang í morgun ásamt lögreglu þar sem flogið var yfir með dróna og skriðusvæðið myndað. Ekki hafa nýjar skriður fallið úr fjallshlíðinni en töluvert vatn er enn í skriðunum. Eftir þessa skoðun hefur Veðurstofan heimilað Vegagerðinni að hefja hreinsunarstarf. Samkvæmt verkstjóra hjá Vegagerðinni mun sú vinna taka sinn tíma þar sem um er að ræða mikið magn af jarðvegi sem þarf að fjarlægja.
Á morgun laugardag munu eftirlitsmenn frá Veðurstofu meta stöðuna á ný og verður Grenivíkurvegur því lokaður enn um sinn eða þar til Veðurstofan gefur grænt ljós og Vegagerðin lokið sínu hreinsunarstarfi".

Athugasemdir

Nýjast