Ungar veiðiklær fóru að dorga

Dásamlega spennt börn, foreldrar og starfsfólk héldu í hópferð út á Mývatn að dorga.  Myndir á vef Þ…
Dásamlega spennt börn, foreldrar og starfsfólk héldu í hópferð út á Mývatn að dorga. Myndir á vef Þingeyjarsveitar

Nemendur í leikskólanum Yl í Reykjahlíð hafa unnið að stórskemmtilegu verkefni í útikennslu upp á síðkastið en útikennslan er mjög fjölbreytt og stór partur af skólastarfinu. 

Verkefnið hófst á því að eldri börnin fengu fræðslu um dorgveiði. Því næst útbjuggu litlu veiðimennirnir dorgir úr náttúrulegum efnivið að eigin vali og undirbjuggu sig undir veiðiferð. Flestir völdu sér greinar til að nota í veiðarfæri og máluðu og skreyttu. Leikskólinn auglýsti eftir nokkrum önglum og sökkum sem vantaði og Mývetningar voru ekki lengi að bregðast við og græja það sem upp á vantaði.

Dásamlega spennt börn, foreldrar og starfsfólk héldu svo í hópferð út á Mývatn að dorga. Fengurinn var ekki mikill, en veiðarfærin glæsileg og gleðin mikil! Eftir dorgið var boðið upp á samlokur og heitt kakó. Börnin munu svo ljúka verkefninu með því að matreiða silung úti yfir opnum eldi. Bianca Maria sinnir útikennslunni en hún og leikskólinn eiga mikið hrós skilið fyrir flott verkefni segir á vefsíðu Þingeyjarsveitar.


Athugasemdir

Nýjast