Undirbúningur jólanna í Gamla bænum í Laufási

Jólastemning fortíðarinnar verður endurlífguð í Gamla bænum Laufási sunnudaginn 7. desember nk. frá 13:30 - 16:00. Þá mun gestum og gangandi gefast kostur á því að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla sveitasamfélaginu.  

Jólaundirbúningurinn hefst með samverustund fyrir alla fjölskylduna í Laufáskirkju undir stjórn sr. Gylfa Jónssonar. Í Gamla bænum mun eldur loga á hlóðum og krauma í feitinni á meðan laufabrauðið er skorið og steikt. Hangikjötsilmur læðist um híbýlin og lokkar til sín fyrsta jólasveininn, Stekkjastaur, á leið hans til byggða. Börn á öllum aldri geta reynt sig við að gera jólaskraut eins og tíðkaðist á þessum tíma og unnið verður að kertagerð.

Skemmtilegur kvæðasöngur með jólalegum blæ mun fylla hvern krók og krima í Gamla bænum um leið og yndislegur ilmur hins rómaða kúmenkaffis leikur um vit gesta. Hægt verður að smakka á kræsingunum og jólamarkaðurinn verður í skálanum en þar kennir ýmissa grasa. Kaffi/Kakó og smákökur verða til sölu í Gamla Prestshúsinu. Aðgangseyrir er kr. 500- fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börnin.

Það er Laufásshópurinn ásamt fjölda annarra velunnara Gamla bæjarins sem gerir það mögulegt að hægt er að upplifa jólaundirbúning gamla sveitasamfélagsins á þennan hátt.

Nýjast