Námsárið hefst í febrúar 2009 og verður boðið upp á sérhæfingu á fimm námsbrautum: Jarðhitaorku; Efnarafölum og vetnisorku; Lífmassaorku og vistvænu eldsneyti; Vatnsaflsorku; og Orkukerfi og orkustjórnun. Við RES stunda nú rúmlega þrjátíu nemendur meistaranám á þremur námsbrautum frá tíu þjóðlöndum. Mikil áhersla er lögð á að námið sé alþjóðlegt og fer öll kennsla fram á ensku, auk þess sem stór hluti kennara við skólann kemur frá erlendum rannsóknarháskólum. Meistaranemar skólans vinna rannsóknarverkefni sín í tengslum við íslensk orkufyrirtæki eða erlenda samstarfsháskóla og rannsóknarstofnanir.
RES - Orkuskólinn býður upp á fyrsta flokks aðstöðu í alþjóðlegu námsumhverfi. Skólinn starfar í nánu samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, sem útskrifa nemendur skólans með meistarapróf í endurnýjanlegum orkufræðum (e. M.Sc. in Renewable Energy Science). Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar um námið eru á vefsíðu RES á slóðinni: http://www.res.is/