Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrar - Blöndulína 3 þrengir að landlitlu sveitarfélagi

Fyrirhuguð lega  Blðndulinu 3
Fyrirhuguð lega Blðndulinu 3

„Um er að ræða gríðarlega mikla hagsmuni Akureyrarbæjar, enda ljóst að umrædd lína þrengir að því landlitla sveitarfélagi sem Akureyrarbær er, getur hindrað vöxt þess og er líkleg til að rýra gæði þeirrar byggðar sem fyrir er,“ segir í bókun umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrar, en á fundi ráðsins voru lögð fram drög að umsögn vegna lagningar Blöndulínu í gegnum land Akureyrarbæjar frá norðri og að Rangárvöllum.

Landsnet hefur óskað eftir því að gerð verði breyting á aðalskipulagi Akureyrar vegna Blöndulínu 3 en um er að ræða svæði ofan byggðar frá Rangárvöllum að sveitarfélagsmörkum við Hörgársveit. Breytingin er til komin vegna áforma Landsnets um framkvæmd við Blöndulínu 3, 220 kV háspennulínu frá Blöndustöð að Rangárvöllum á Akureyri.

Erlendur aðili leggi mat á álit Landsnets

Fram kemur einnig í bókun ráðsins að í ljósi þeirra miklu hagsmuna sem um ræðir sé nauðsynlegt að erlendur aðili leggi mat á það álit Landsnets að ekki sé hægt að leggja Blöndulínu 3 í jörðu innan þéttbýlis Akureyrarbæjar. „Ekki ætti að halda áfram með málið fyrr en sú ótvíræða niðurstaða liggur fyrir. Ef niðurstaðan verður sú að aðrar leiðir eru ekki færar, er nauðsynlegt að samið verði um að línan fari í jörðu eins fljótt og kostur er, án þess að Akureyrarbær beri umræddan kostnað og að sá samningur liggi fyrir áður en gerðar verði breytingar á skipulagi sveitarfélagsins,“ segir í bókun ráðsins sem einnig vekur athygli á því að umrædd loftlína rýrir græna trefilinn umtalsvert.

Skipulagsráð hafði áður fjallað um málið og áréttaði það sem fram kemur í stefnu stjórnvalda að línulagnir í þéttbýli skuli lagaðar í jörðu og að til þess verði horft í allri hönnunarvinnu.


Athugasemdir

Nýjast