Umfang rekstrar KA aldrei meiri, 45 mkr hagnaður á liðnu ári.

Aðalstjórn KA: Vignir Már Þormóðsson, Eiríkur S. Jóhannsson formaður, Sigríður Jóhannsdóttir og Hjal…
Aðalstjórn KA: Vignir Már Þormóðsson, Eiríkur S. Jóhannsson formaður, Sigríður Jóhannsdóttir og Hjalti Þór Hreinsson. Á myndina vantar Lindu Ívarsdóttur Myndir ka.is

Aðalfundur Knattspyrnufélags Akureyrar var haldinn í í KA-Heimilinu á þriðjudaginn þar sem Eiríkur S. Jóhannsson formaður félagsins fór yfir skýrslu stjórnar og liðið ár. Síðasta rekstrarár var það stærsta í sögu félagsins og hefur velta félagsins aldrei verið jafn mikil eins og árið 2023.

Stjórn félagsins var endurkjörin en ásamt Eiríki þá sitja í stjórn félagsins þau Vignir Már Þormóðsson, Sigríður Jóhannsdóttir, Linda Ívarsdóttir og Hjalti Þór Hreinsson auk þess sem Arna Hrönn Skúladóttir er varamaður.

Sögunefnd KA er skipuð þeim Hrefnu Torfadóttur, Ágústi Stefánssyni, Vigni Má Þormóðssyni, Hlyni Þormóðssyni og Lindu Ívarsdóttur. Þá skipa Jakobssjóð þeir Bjarni Áskelsson, Ingvar Már Gíslason og Magnús Sigurður Sigurólason.

Rekstur félagsins var góður á árinu 2023 en rekstrartekjur félagsins námu rúmum 822 milljónum kr, meðan rekstargjöld voru rúmar 777 miljónir kr. Eftir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld var hagnaður félagsins því rúmar 45 milljónir kr.

Efnahagur félagsins stendur einnig vel en eignir félagsins eru tæpar 284 milljónir kr og þar af eru veltufjármunir rúmar 151 milljón kr.

,,Framundan eru spennandi tímar hjá félaginu þar sem framkvæmdir á íþróttasvæðinu eru að hefjast og munum við sjá miklar breytingar á félagssvæði okkar næstu misseri. Glæsileg félagsaðstaða verður byggð samhliða nýjum keppnisvelli fyrir knattspyrnu með stúku."

Félagsgjöld voru ákveðin 6.000 kr og er félagsmönnum bent á að hægt er að hafa samband við Arnar Gauta (gauti@ka.is) til að ganga frá greiðlsu  þeirra.

Frá þessu segir á ka.is


Athugasemdir

Nýjast