UFA eignaðist 6 Íslandsmeistara

Ungmenni frá Akureyri stóðu sig vel á Unglingameistaramóti Íslands sem haldið var á dögunum. Hér er …
Ungmenni frá Akureyri stóðu sig vel á Unglingameistaramóti Íslands sem haldið var á dögunum. Hér er hluti keppenda.

Ungmenni frá Akureyri stóðu sig með miklum glæsibrag á Unglingameistaramót Íslands sem haldið var í Kaplakrika, Hafnarfirði nýverið. Allir voru til fyrirmyndar. UFA eignaðist 6 Íslandsmeistara, 2 silfurverðlaun og 5 brons.

Þeir Gunnar Eyjólfsson og Birnir Vagn Finnson settu einnig báðir mótsmet. Gunnar í stangarstökki þar sem hann stökk 4, 45 metra. Birnir Vagn í 110 metra grindahlaupi á tímanum 14,91.

 

Andrea Björg Hlynsdóttir (16- 17 ára) náði 3. sæti í 100 m grindahlaupi á 18,30. Aþena Björk Ómarsdóttir (16-17 ára) hljóp 800 m á 2.56,63 sem gaf henni 3. sætið. Birnir Vagn Finnsson (16-17 ára) hljóp 100 m á 11,07 og náði 2. sæti; í 110 metra grindahlaupi á 14,91; 1. sæti á mótsmeti og mikil persónuleg bæting. 400 m grindahlaup 59,71; 1. sæti. Stangarstökk 3.20 m 3. sæti. Þrístökk 12,76 m 1. sæti. Spjótkast 44,06 m og 2. sæti. Dagur Máni Guðmundsson (16-17 ára) átti persónulega bætingu í kúluvarpi þar sem hann kastaði 11,51 m og náði 6. sæti. Gunnar Eyjólfsson (20-22 ára) hljóp 110 metra grindahlaup á 16,45 og varð í 1. sæti. Stangarstökk 4,20 m; 1. sæti og mótsmet. Langstökk 6,81 m 1. sæti. Kringlukast 34,23 m 3. sæti. Sigurlaug Anna Sveinsdóttir (15 ára) hljóp 300 m hlaup á 47,32 og náði hún 3. sæti. Einnig bætti hún persónuleg met í langstökki; 4,69 mog kúluvarpi; 8,46 m. Tjörvi Leó Helgason (15 ára) bætti sinn persónulega árangur í hástökki þar sem hann stökk 1,40 m og varð í 5. sæti. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þessu unga og efnilega frjálsíþróttafólki, sem verður gaman að fylgjast með í framtíðinni.


Athugasemdir

Nýjast