Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að n.k laugardag 10 október verður um land allt efnt til við viðburðar sem nefnist Samtalið en til þess var stofnað að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Hún vill setja samtal og frið á dagskrá á ný.
Nemendur við Framhaldsskólan á Laugum í Reykjadal standa fyrir dagskrá í skólanum á laugardaginn,
Sveinn Jörundur Björnsson er formaður Nemendafélags Laugaskóla hann er i viðtali við vef Vikublaðsins.
Um það hvort þörf sé degi sem þessum segir hann:
,,Við höfum fjarlægst hvort annað svo mikið að við þurfum raunverulega skipuleggja samtal til þess að það eigi sér stað. Tæknin hefur tengt okkur saman en á sama tíma hefur hún fjarlægt okkur alltof langt frá hvort frá öðru. Og við erum á þeim stað að við þurfum að hittast, setjast niður, slaka á og hlusta á hvort annað til að komast yfir þessa fjarlægð.
Forseti Íslands hefur gefið okkur það verkefni að finna út hvernig samfélag við viljum skapa saman og ég tel að við þurfum að hlusta á raddir allra, eldri og yngri, með sömu virðingunni til þess að leysa þetta verkefni. Tímarnir eru að breytast á ótrúlegum hraða, að sumu leyti svipað því sem var í kalda stríðinu en fyrir 40 árum síðan hittust tveir valdamestu menn í heiminum á Íslandi til þess setjast niður og ræða saman.
Núna, þann 10.október 2026, ætla kynslóðirnar að setjast niður og ræða saman, um framtíðina, frið og það sem skiptir öllum kynslóðum miklu máli."

Sveinn Jörundur Björnsson formaður Nemendafélags Framhaldsskólans á Laugim
Hvernig verður dagskráin hjá ykkur á Laugum?
,,Dagskráin hefst 13:30,þá opnar húsið og við komum fólki fyrir á borðunum sínum.
Klukkan 14:00 byrjar samtalið og þá kynnum við málefni fyrir hvert borð og komum þessu í gang.
Klukkan 15:30 ætlum við að bjóða uppá kaffi og kleinur og tökum smá pásu.
Klukkan 16:00 setjumst við aftur á okkar staði og tökum samtalið upp aftur.
Klukkan 17:00 klárast samtalið og þá verður hvert borð búið að ákveða setningu sem að lýsir þeirra framtíðarsýn fyrir samfélagið best."
Hvaða hlutverki gegna skólar, félagssamtök og almenningur í verkefninu og hvernig getur fólk tekið þátt?
,,Viðburðinn er haldinn í flestöllum framhaldsskólum á landinu í samvinnu við forseta Íslands. Ef þú ert á aldrinum 16-30 ára getur þú skráð þig sem lóðsi. Lóðsar eru þau sem halda utan um samtalið og skipuleggja það.
Allir aðrir geta skráð sig sem þátttakanda og hér er ekkert sko ekkert aldurshámark.
Öll hafa eitthvað hlutverk á stóra deginum. Þú skráir þig sem lóðsa eða þátttakanda inná lodsa.is og getur aflað þér fleiri upplýsinga þar.
Við viljum að sem flestir taki þátt í samtalinu og ég hvet ykkur til að skrá ykkur.
Hvað vantar upp á í dag þegar kemur að því að hlusta hvert á annað?
,,Ég tel að það sem vanti er spjall. Að fólk hittist og tali saman er að deyja út, sérstaklega hjá yngri kynslóðum. Við þurfum líka að æfa okkur í að hlusta og til þess að hlusta þarf samtal að vera til staðar. Vegna þessa við tölum minna saman í raunheimum þá hlustum við minna sem er sérstaklega sárt þegar einstaklingar sem þora varla að láta heyra í sér tala.
Ég tel að internetið og samfélagsmiðlar séu stærsta ástæða þess að ungt fólk þorir ekki að spjalla íraunheimum og kynnast nýju fólki. Á netinu er auðvelt að gera lítið úr öðrum því þú þarft ekki að líta í augu manneskjunnar sem þú ert að tala um. Lausnin er einfaldlega að átta sig á að samskipti sem gerast í raunheimum eru miklu dýrmætari en þau sem gerast á samfélagsmiðlum.
Ég skora á fólk að tala meiri við kunningja sem og ókunnuga, hrósa þeim eða bjóða góðan daginn. Og muna að hlusta þegar fólk talar. Líka á fólk sem er yngra en þú."
Hvaða breytingar viltu sjá í kjölfar Samtalsins, segjum eftir eitt ár?
,,Í fyrsta lagi að kynslóðir spjalli meira sín á milli sín. Að kenna okkur hvernig á að tala og hlusta, bæði við fólk sem við þekkjum og fólk sem við þekkjum ekki. Ég vona að verkefnið veki athygli á því hvað samfélagið skortir mikið af nærveru og góðu samtali í raunheimum.
Það er hægt að misskilja svo mikið í netspjalli, þar vantar líkamstjáningu, tóninn í röddinni, augnsamband og allt það sem við notum þegar við erum að tala saman.
Þar geta yngri kynslóðir eflaust lært mikið af eldri kynslóðum en mest af öllu vona ég að þegar við erum ósammála getum við talað saman og hlustað á hvort annað af virðingu, til þess að komast yfir ágreining og finna út hvað það er sem sameinar okkur."