Akureyri verður suðupottur gjörningalistar á A!

Alþjóðlega gjörningahátíðin A! verður haldin á Akureyri í tólfta sinn dagana 8.–10. október
Alþjóðlega gjörningahátíðin A! verður haldin á Akureyri í tólfta sinn dagana 8.–10. október

Alþjóðlega gjörningahátíðin A! verður haldin á Akureyri í tólfta sinn dagana 8.–10. október og breytir bænum í suðupott gjörningalistar.

Hátíðin er samstarfsverkefni helstu menningarstofnana á svæðinu og býður upp á ókeypis aðgang að fjölbreyttri dagskrá þar sem listamenn úr ýmsum áttum leiða saman dans, myndlist, tónlist og leikhús.

Dagskráin einkennist af mikilli breidd og fjallar um allt frá tengslum manns og náttúru til ástar og leyndarmála. Meðal helstu erlendra gesta eru Diana Burkot, meðlimur rússneska listahópsins Pussy Riot, sem flytur tónlistargjörninginn Sweat & Blood.og Yubusha, japanskur listahópur sem sýnir nýjan Butoh-gjörning þar sem japönsk hefð og íslensk þjóðtrú mætast.

Gjörningalist hefur á undanförnum áratugum færst frá jaðri samtímalistarinnar nær miðju hennar og innan listformsins rúmast ótal aðferðir og nálganir. A! skapar vettvang fyrir þessa fjölbreytni og gefur gestum kost á að kynnast gjörningalist í ólíkum myndum og jafnframt upplifa bæinn og rými hans með nýjum hætti.

Nýjast