Dekurdagar á Akureyri eru hafnir og standa yfir til sunnudags, þetta er árlegur viðburður þar sem fólk er hvatt til þess að njóta lífsins, enda fjölmargt í boði .
Hægt er að velja úr fjölda viðburða sem auðga andann og gleðja hjartað, þar að auki bjóða margar verslanir og fyrirtæki upp á ýmiskonar uppákomur og dekurlega afsætti
Eins og fólki er kunnugt eru Dekurdagar mikilvægir fyrir Krabbameinsfélagið því sala á bleikum slaufum sem almenningur og fyrirtæki kaupa til að skreyta hjá sér skilar félaginu afar vel.
Verslunareigendur á Akureyri standa að Dekurdögum með aðstoð Akureyrarbæjar en þeir voru fyrst haldnir árið 2008.
Fylgist með á Facebook síðu Dekurdaga þar sem m.a. má sjá frekari upplýsingar.
