Sunna Hlín varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga

Ný stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sunna Hlín Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi Framsóknarflokks…
Ný stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sunna Hlín Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi Framsóknarflokks á Akureyri var kjörin varaformaður.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir hefur verið kjörin varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fyrsti fundur nýrrar stjórnar var haldin í dag. Formaður sambandsins er Almar Guðmundsson.

„Ég hlakka mikið til að starfa með þessum flotta hópi. Hér blandast saman nýir kraftar og reynsla þeirra sem hafa verið lengur að. Mér sýnist þetta vera dúndurblanda,“ segir Sunna Hlín í færslu á facebook síðu sinni, en þar þakkar hún einnig það traust sem henni var sýnt með kjörinu.

Nýjast