Tveir helstu reynsluboltar lögreglunnar kvaddir formlega

Tveir af helstu reynsluboltum lögreglunnar á Akureyri, þeir Ólafur Ásgeirsson og Þorsteinn Pétursson, voru kvaddir með formlegum hætti í gær en báðir hafa þeir látið af störfum vegna aldurs og eru komnir á eftirlaun. Ólafur varð 65 ára þann 29. apríl sl. og lét af störfum í lok þess mánaðar. Þorsteinn náði þeim aldri 27. maí sl. og lét formlega af störfum í gær.  

Á lögreglustöðinni á Akureyri var boðið til veislu, þar sem fluttar voru ræður og þeir félagar leystir út með gjöfum. Ólafur starfaði í lögreglunni á Akureyri í rétt rúm 46 ár og lengst af sem yfirlögregluþjónn. Þorsteinn starfaði í um 32 ár í lögreglunni, í seinni tíð sem fræðslu- og forvarnarfulltrúi. Hann hóf störf í lögreglunni 1967, fyrstu þrjú árin á Dalvík en tók sér frí frá lögreglunni á árunum 1986-1999 og starfaði þá hjá Tollinum.

Nýjast