Tuttugu ára afmæli Stóru upplestrarkeppninnar á Akureyri

Þátttakendur upplestrarkeppninnar. Á myndina vantar þau Sigurgeir Bjarka Söruson og Emmu Arnarsdóttu…
Þátttakendur upplestrarkeppninnar. Á myndina vantar þau Sigurgeir Bjarka Söruson og Emmu Arnarsdóttur.

Stóra upplestrarkeppnin fór fram í tuttugasta sinn nýverið en hún hefur farið fram í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri nær frá upphafi. Nemendur 7. bekkjar grunnskóla bæjarins taka þátt í keppninni ár hvert en áður hafa skólarnir haldið forkeppni og valið tvo fulltrúa sína, auk varamanns. Að þessu sinni voru skáld keppninnar Birkir Blær Ingólfsson og Jón Jónsson úr Vör.

Lesið var í þremur umferðum og í fyrstu umferð fluttu þátttakendur svipmyndir úr bók Birkis Blæs, Stormsker, í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Jón úr Vör og í síðustu umferð valdi hver flytjandi sér ljóð til flutnings. Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar 2020 eru Sólon Sverrisson í Naustaskóla sem varð í 1. sæti, Hólmdís Rut Einarsdóttir í Lundarskóla sem varð í 2. sæti og Tinna Evudóttir í Glerárskóla sem hafnaði 3. sæti.

Upphafsdagur Stóru upplestrarkeppninnar er á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, ár hvert en það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Fram að lokakeppni leggja nemendur og kennarar áherslu á að æfa upplestur og vanda framburð og huga vel að áherslum, túlkun og framkomu í ræðustóli. „Að venju voru nemendur sér og skólum sínum til mikils sóma þennan dag og dómarar hafa ekki verið öfundsverðir af því hlutskipti að velja einn fremur öðrum í verðlaunasæti.

Eins og áður var það Ingibjörg Einarsdóttir sem var formaður dómnefndar en hún er einn af upphafsmönnum keppninnar, sem fór fyrst fram í Hafnarfirði fyrir tuttugu og fjórum árum,“ segir í tilkynningu. Ómissandi þáttur hátíðarinnar er tónlistarflutningur nemenda Tónlistarskólans á Akureyri. Að þessu sinni fengu gestir að hlusta á fiðlur og víólu, auk píanóleiks. „Tónlistarflytjendum og kennurum þeirra eru færðar bestu þakkir fyrir allan þeirra undirbúning og æfingar sem skiluðu sér í vönduðum og góðum flutningi fyrir fullum sali áhorfenda.“

 

 


Athugasemdir

Nýjast