Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Tónleikarnir eru helsti vettvangurinn til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta. Á tónleikunum koma fram lengra komnir nemendur sem flytja fjölbreytta dagskrá. Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum í sjóðinn.