Tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu Akureyrar 2020

Viktor Samúelsson og Aldís Kara Bergsdóttir voru efst í kjöri íþróttamanns Akureyrar í fyrra. Þau er…
Viktor Samúelsson og Aldís Kara Bergsdóttir voru efst í kjöri íþróttamanns Akureyrar í fyrra. Þau eru bæði tilnefnd aftur. Mynd/Akureyri.is.

Tilkynnt verður á miðvikudaginn næstkomandi um val á íþróttakarli og íþróttakonu Akureyrar fyrir árið 2020. Síðustu ár hefur bæjarbúum verið boðið til athafnar við þetta tilefni. Sökum aðstæðna verður viðburðurinn í menningarhúsinu Hofi með öðru og minna sniði en venjulega og því ekki hægt að hafa hann opinn almenningi. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar. 

Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og Akureyrarbær standa að valinu og verður þetta í 42. sinn sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður.

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakonu Akureyrar 2020 eru:

-Aldís Kara Bergsdóttir, Skautafélag Akureyrar, fyrir listhlaup
-Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Golfklúbbi Akureyrar, fyrir golf
-Anna María Alfreðsdóttir, Íþróttafélagið Akur, fyrir bogfimi
-Arna Sif Ásgrímsdóttir, Íþróttafélagið Þór, fyrir knattspyrnu með Þór/KA
-Ásdís Guðmundsdóttir, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir handknattleik með KA/Þór
-Gígja Björnsdóttir, Skíðafélag Akureyrar, fyrir skíðagöngu
-Gígja Guðnadóttir, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir blak
-Hafdís Sigurðardóttir, Hjólreiðafélag Akureyrar, fyrir götuhjólreiðar
-Hafdís Sigurðardóttir, Ungmennafélag Akureyrar, fyrir frjálsar
-Karen María Sigurgeirsdóttir, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir knattspyrnu með Þór/KA

Tíu efstu tilnefningar til íþróttakarl Akureyrar 2020 eru:

-Baldur Vilhelmsson, Skíðafélag Akureyrar, fyrir snjóbretti
-Brynjar Ingi Bjarnason, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir knattspyrnu
-Einar Sigurðsson, KKA Akstursíþróttafélag, fyrir motocross
-Ingvar Þór Jónsson, Skautafélag Akureyrar, fyrir íshokkí
-Júlíus Orri Ágústsson, Íþróttafélagið Þór, fyrir körfuknattleik
-Lárus Ingi Antonsson, Golfklúbbur Akureyrar, fyrir golf
-Miguel Mateo Castrillo, Knattspyrnufélag Akureyrar, fyrir blak
-Vignir Sigurðsson, Hestamannafélagið Léttir, fyrir hestaíþróttir
-Viktor Samúelsson, Kraftlyftingafélag Akureyrar, fyrir kraftlyftingar
-Þorbergur Ingi Jónsson, Ungmennafélag Akureyrar, fyrir utanvegahlaup


 

Athugasemdir

Nýjast