05. maí, 2010 - 19:59
Fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri efnir til súpufundar á morgun í Kaupangi um skipulagsmál. Ólafur Jónsson varaformaður
skipulagsnefndar Akureyrarbæjar, sem skipar 2. sætið á framboðslista D-listans, flytur á fundinum erindi um skipulagsmál, sérstaklega mun hann fjalla
um nýtt miðbæjarskipulag.
Ólafur mun meðal annars kynna tillögu til sáttar um hið umdeilda síki í miðbænum. Fundurinn verður eins og fyrr segir haldinn í
Kaupangi. Hann hefst klukkan 12:00 og lýkur klukkan 13:00. Fundurinn er öllum opinn og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og ræða, segir í
fréttatilkynningu.