Til hamingju með að vera mannleg

Sýningin Til hamingju með að vera mannleg verður sýnd í Hofi á Akureyri 16. mars næstkomandi. Hluti miðaverðs, 1000 krónur renna til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Sigríður Soffía  braut blað í íslenskri menningarsögu í vor sem leið þegar hún gaf út sína fyrstu ljóðabók og frumsýndi á sama tíma dansverk við ljóð bókarinnar í Þjóðleikhúsinu, ljóðabálkurinn er magnaður og oft verulega átakanlegur.

Sýning vakti mikla athygli,  hlaut afar lofsamlega umfjöllun og þrjár tilnefningar til Grímuverðlaunanna. Sýndar voru aukasýningar á stóra sviði Þjóðleikhússins í október í tengslum við Bleiku slaufuna, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins.

Sýningin er byggð á ljóðabók Siggu Soffíu sem hún samdi þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð í heimsfaraldri. Hvað gerir dansari sem getur ekki dansað? Verkið fjallar um mikilvægi vináttunnar, um andlegan styrk og um samfélag kvenna sem standa hver með annarri. Ástarjátning til lífsins - ljóð, leikur, söngur, grín og dans!

Í verkinu dansa og leika föngulegur hópur kvenna leikkonurnar/dansararnir Nína Dögg Filippusdóttir og Svandís Dóra Einarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnardóttir og Ellen Margrét Bæhenz, Díana Rut Kristinsdóttir og Inga María Ólsen (sem leikur hlutverk Hallveigar Kristínar Eiríksdóttur)

 „Ástæða þess að ég er að koma með þessa sýningu norður er að ég hef fengið ótal pósta frá konum og aðstandendum sem hafa lesið ljóðabókina og komið á sýninguna og fært mér einlægar þakkir. Þegar ég greindist með brjóstakrabbamein þekkti ég engan sem hafði veikst og í mínum litla heimi fannst mér eins og ég væri eina unga konan með brjóstakrabbamein,“ segir Sigríður um sýninguna.

 


Athugasemdir

Nýjast