Þórsarar í slæmum málum eftir tap gegn ÍR

Þórsarar eru í verulega slæmum málum í Iceland Expressdeild karla í körfubolta eftir tap gegn ÍR í Höllinni í kvöld. Leikurinn var spennandi allt til loka en tvær þriggja stiga körfur frá ÍR á loka mínútunni gerðu út um vonir Þórsara á sigri. Mikið munaði um hjá Þór að Daniel Bandy náði sér ekki á strik í leiknum en samt sem áður var leikurinn jafn allan tímann en gestirnir voru þó yfirleitt skrefinu á undan. Staðan í hálfleik var 46-47 fyrir ÍR. Því miður fyrir Þórsara var þriðji leikhluti slakur að þeirra hálfu eins og svo oft áður í vetur og töpuðu þeir honum 15-22 og voru því undir 61-69 þegar flautað var til fjórða leikhluta.

Fjórði leikhluti var æsispennandi. Þórsarar náðu fljótlega að saxa verulega á forskot gestanna og höfðu skyndilega höfðu þeir einu stigi yfir þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka. Eftir mikinn barning næstu sekúndur var staðan jöfn 90-90 þegar nákvæmlega mínúta var eftir.

En eins og með lið sem eiga í fallbaráttu virðast lukkudísirnar yfirleitt á bandi andstæðinganna og það voru þær svo sannarlega í þessum leik því gestirnir settu niður tvær þriggja stiga körfur á síðustu mínútunni og var sú fyrri, sem gerði svo gott sem út um vonir Þórsara, úr mjög erfiðri stöðu. Lokatölur 96-90 fyrir ÍR.

Leikurinn var hin mesta skemmtun og verður að segja Þórsurum það til hróss að þeir gáfust aldrei upp og spiluðu oft og tíðum fínan körfubolta. Liðið á enn veika von um að halda sæti sínu í deildinni ef þeir vinna KR í síðustu umferðinn næsta sunnudag og önnur úrslit verða þeim í hag. Sem verður að teljast verulega ólíklegt miðað við leikjaáætlun FSU og Tindastóls sem eru í fallbaráttunni ásamt Þór.

Stig Þórs: Konrad Tota 24, Guðmundur Jónsson 17, Hrafn Jóhannesson 16, Daniel Bandy 14, Jón Orri Kristjánsson 12, Óðinn Ásgeirsson 4, Baldur Jónsson 3.

Nýjast