Þór/KA sækir FH heim í 8- liða úrslitum bikarkeppninnar

Þór/KA mætir FH á útivelli í 8- liða úrslitum VISA- bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, en dregið var í hádeginu í dag í höfuðstöðvum KSÍ. Leikið verður í 8- liða úrslitum föstudaginn 9. júlí næstkomandi og hefjast allir leikirnir kl. 19:15. Fylgst var með bikardrættinum í beinni útsendingu á vefsíðunni fotbolti.net og drógust liðin þannig saman:

Stjarnan- Grindavík

Fylkir - Valur

ÍBV – Haukar

FH- Þór/KA

Nýjast