Ólafur verður jafnframt varamaður í bæjarráði. Í bréfi Þórarins B. Jónssonar segir m.a: "Árið 1994 var ég
kosinn bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn hér á Akureyri og tók sæti í bæjarstjórn, ég var 12 ár
samfellt bæjarfulltrúi til ársins 2006, en á yfirstandandi kjörtímabili hef ég verið 1. varamaður í bæjarstjórnarliði
Sjálfstæðisflokksins. Á þessu tímabili sat ég í ráðum og nefndum fyrir bæjarstjórnina, mörg
þessi störf voru krefjandi en á sama tíma mjög gefandi, ég tel mig hafa sinnt þessum störfum öllum að trúmennsku.
Nú 1. janúar 2010 varð ég aftur bæjarfulltrúi er vinur minn Kristján Þór Júlíusson fékk lausn frá störfum
bæjarfulltrúa. Mál hafa hins vegar skipast svo hjá mér að ég dvel erlendis hluta úr árinu og verð ekki heima frá miðjum
janúar til vors. Hef ég því ákveðið að óska eftir lausn frá störfum í bæjarstjórn Akureyrar. Ennfremur mun
ég ekki gefa kost á mér til framboðs vegna bæjarstjórnarkosninga í maí nk."