Rúm 50 ár eru nú liðin frá stofnun hljómsveitarinnar Þokkabótar. Fyrsta plata þeirra, Upphafið, kom út 1974. Hún vakti mikla athygli fyrir beitta texta, grípandi lög og geðgóðan flutning. Þekktasta lagið var „Litlir kassar“ og var einkennandi fyrir þá geðgóðu þjóðfélagsrýni sem einkenndi sveitina okkar á milli.
Þetta var fyrsta platan sem bar við þjóðfélagsgagnrýni á Íslandi, og náði einhverjum hæðum. Þrjár plötur fylgdu síðan í kjölfarið. Þokkabót hélt upp á 50 ára afmæli sitt með tónleikum í Salnum, Kópavogi 21. mars og seldist upp fljótt og vel og voru undirtektirnar frábærar. Aukatónleikar verða í Salnum 5, júní og er að fyllast á ný.
Fyrst er þó stefnan tekin á Græna hattinn á Akureyri laugardagskvöldið 31. maí.
Hvergerðingurinn Halldór Gunnarsson og seyðfirsku piltarnir Ingólfur Steinsson, Gylfi Gunnarsson og Magnús R. Einarsson skipuðu upphaflegu sveitina en nokkrar breytingar urðu í framhaldinu. Á tónleikunum verða Halldór, Ingólfur og Gylfi ásamt Lárusi H. Grímssyni, Haraldi Þorsteinssyni og Ásgeiri Óskarssyni sem voru með á síðustu plötunni, í Veruleik. Í hópinn bætist nú Jóhanna Þórhallsdóttir, söngkonan ástsæla, en hún kom mikið við sögu á einni plötu Þokkabótar, Fráfærum.
Þokkabót lofar góðri skemmtun og nostalgíu.
Hjólbörumyndin gamalkunna. Frá vinstri: Magnús R. Einarsson, Halldór Gunnarsson, Ingólfur Steinsson og Gylfi Gunnarsson.