Nú eru nýir "þjónar" með í för og forvitnilegt að vita hvernig þeir reynast! Þetta er uppákoma sem byggir á spuna og stemmningu og aldrei að vita hvað gerist, því engar tvær sýningar eru eins. Matseðillinn er saminn af Friðriki V sjálfum, er hann þekktur fyrir dýrindis mat. Síðastliðinn vetur var uppselt öll kvöldin og oft var biðlisti eftir borðum. Það borgar sig því að vera snemma í því og panta borð í tíma, segir í tilkynningu.
Sýningar:
Kl. 18.30 miðvikudaginn 27.janúar
Kl. 18.30 miðvikudagur 3.febrúar - SÉRSTÖK DALVÍKURSÝNING
Kl. 22.00 föstudagur 5.febrúar
Kl. 18.30 miðvikudagur 10.febrúar
Kl. 22.00 föstudagur 12.febrúar
Kl. 19.30 þriðjudaginn 16.febrúar