Tenórinn syngur sitt síðasta í Samkomuhúsinu á Akureyri

Leiksýningin TENÓRINN, eftir Guðmund Ólafsson, var frumsýnd á Berjadögum í Ólafsfirði sumarið 2003 og síðar það sama haust  í Iðnó, þar sem sýningin var á fjölunum  í tvö leikár. Auk þess var verkið leikið haustið 2006 í Freyvangi í Eyjafjarðarsveit, vorið 2007 í Borgarleikhúsinu og svo gladdi söngvarinn augu og eyru íbúa á Norðausturlandi í miðju bankahruninu sl. haust.  

Eftir sex ára sýningartíma TENÓRSINS, finnst höfundinum og leikaranum Guðmundi Ólafssyni,  að "nú sé mál að linni" og því mun tenórinn syngja sitt síðasta í Samkomuhúsinu á Akureyri laugardagskvöldið 14. mars en þar þreytti Guðmundur einmitt frumraun sína í atvinnuleikhúsi haustið 1974.

Í leikritinu segir frá tenórsöngvara sem hefur verið langdvölum í útlöndum en er nú kominn heim í stuttan stans, og notar tækifærið til að halda tónleika. Leikritið gerist á tæpum tveimur klukkutímum í búningsherbergi ónefnds tónlistarhúss þar sem söngvarinn og undirleikari hans eru að undirbúa sig fyrir tónleikana. Upphitun þeirra og undirbúningur taka á sig undarlegustu króka bæði til fortíðar og framtíðar og kemur ýmislegt í ljós þegar skyggnst er ofaní sálarkirnu söngvarans ekki síður en í ferðatösku hans. Í tónlist er víða leitað fanga svo sem hjá rússneskum karlakórum, háværum sópransöngkonum og rasssíðum röppurum. Auk þess í hjarnbjörtum íslenskum tenórsöngvum, amerískum söngleikjum, ítölskum slögurum og óperuaríum. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson, Guðmundur Ólafsson er Tenórinn og undirleikarann leikur Sigursveinn Kr. Magnússon.

Nýjast