Telja Húsavíkurflugvöll koma til greina sem millilandaflugvöll

Dornier 328 skrúfuþota Ernis á Húsavíkurflugvelli í Aðaldal. Mynd/Ernir
Dornier 328 skrúfuþota Ernis á Húsavíkurflugvelli í Aðaldal. Mynd/Ernir

Framsýn stéttarfélag telur í ljósi stóraukinna jarðhræringa  og eldsumbrota á Reykjanesskaganum, að full ástæða sé til að taka upp til umræðu staðsetningu flugvalla á Íslandi með tilliti til millilandaflugs. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið sendi frá sér í vikunni. Þar beinir Framsýn þeim tilmælum til stjórnvalda að fram fari faglegt mat á nýjum millilandaflugvelli sem ætlað verði að hliðar við Keflavíkurflugvöll. Félagið telur Húsavíkurflugvöll koma vel til geina sem millilandaflugvöllur. Hagkvæmnissjónarmið verði látin ráða, ekki vanhugsaðar pólitískar ákvarðanir. 

„Komið hafa fram sjónarmið um mikilvægi þess að treysta í sessi öflugan millilandaflugvöll utan höfuðborgarsvæðisins svo hægt verði að bregðast við komi til þess að Keflavíkurflugvöllur lokist. Þannig væri einnig hægt að dreifa aukinni flugumferð og viðkomu erlendra ferðamanna um landið,” segir í ályktuninni.

Að mati Framsýnar hentar Húsavíkurflugvöllur vel sem millilandaflugvöllur, með tilliti til aðflugs og veðurfars og þá er til staðar gott framboð af gistirými á Norðurlandi. Bendir félagið á að þessir þrír þættir skipti verulega miklu máli við val á millilandaflugvelli. Þá þurfi ekki að tíunda allar þær náttúruperlur sem séu víðs vegar í Þingeyjarsýslum og draga að sér tugþúsundir ferðamanna árlega.


Athugasemdir

Nýjast