Tæpar átján milljónir króna til þátttöku í 10 verkefnum

Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar úthlutaði í dag í fyrsta skipti þátttökuframlögum úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar 2008-2010 en samningurinn var undirritaður í janúar síðastliðnum. Á samningstímanum er varið 90 milljónum króna úr ríkissjóði í þeim tilgangi að efla nýsköpun atvinnulífsins á Eyjafjarðarsvæðinu og auka hagvöxt með samstarfi fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins. Vaxtarsamningurinn samþykkti að þessu sinni þátttöku í 10 verkefnum og ver til þeirra samtals 17.750.000 kr. Mikil ásókn var eftir verkefnaaðild Vaxtarsamnings Eyjafjarðar en alls bárust 23 umsóknir og var óskað samtals eftir tæplega 105 milljónum króna. Fyrsta skilyrði fyrir þátttöku Vaxtarsamningsins í verkefnum er að um sé að ræða samstarf tveggja eða fleiri aðila og skal minnst helmingur þátttakenda vera fyrirtæki. Þá er lögð áhersla á verkefni sem efla tengsl háskóla og atvinnulífs, sem og verkefni sem miða að markaðssetningu og útrás. Við val á verkefnum er við það miðað að þau efli nýsköpun á Eyjafjarðarsvæðinu og stuðli að vexti svæðisins. Verkefni sem hljóta samþykki hjá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar fyrir þátttöku fá allt að 50% heildarkostnaðar við þau, gegn mótframlagi annarra þátttakenda.

Þau verkefni sem Vaxtarsamningurinn samþykkti í dag að taka þátt í eru:

Akureyrarstofa Komdu norður 1.000.000

Pharmarctica ehf. Nýjungar í lyfjaframleiðslu 2.000.000

Draumasetrið Skuggsjá Draumar í Eyjafirði 750.000

Hlíðarfjall ehf. Svifbraut 2.000.000

Formula Iceland ehf. Motorgames.eu 2.000.000

Stöng - sumarhús ehf. Haust- og vetrarveiðiferðir 1.000.000

Sounds ehf. Valhalla Studio 2.000.000

Norðanflug ehf. Norðanflug ehf. 2.000.000

Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi Beint flug 2.000.000

Matur úr héraði - Local food 3.000.000

Samtals 17.750.000

Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnisstjóri Vaxtarsamnings Eyjafjarðar, segist ánægður með þær umsóknir sem bárust að þessu sinni og bendir á að hér sé um að ræða fyrstu úthlutun af þremur á þessu ári. "Þau verkefni sem við tökum nú þátt í eru fjölbreytt, bæði stór og smá, hrein nýsköpunarverkefni og einnig verkefni sem komin eru á legg og unnið er að uppbyggingu á. Markmiðið með nýgerðum Vaxtarsamningi fyrir næstu þrjú ár er einmitt að tryggja að sem fjölbreyttust verkefni eigi möguleika á þátttöku samningsins. Það tryggir fjölbreytileika í atvinnuuppbyggingu á svæðinu og vöxt til framtíðar og mér sýnist hafa tekist vel til hvað þessi markmið varðar," segir Hjalti Páll Þórarinsson.

Nýjast