Sýning um Leiklist á Akureyri á Amtsbókasafninu

Á morgun laugardaginn 2. febrúar nk. verður opnuð í forsal og kaffiteríu Amtsbókasafnsins sýning um Leiklist á Akureyri.  Tilefni sýningarinnar er aldarafmæli Samkomuhússins í fyrra og níræðisafmæli Leikfélagsins á sama ári.  Á sýningunni er gefið yfirlit í máli og myndum yfir leikstarfsemi á Akureyri frá því þar var fyrst leikið árið 1860 til dagsins í dag. Sagt er frá fyrstu tilraunum áhugamanna, þegar leikið var nánast jöfnum höndum á dönsku og íslensku, og því hvernig íslenskan vann á jafnt og þétt með leikritum skálda eins og Matthíasar Jochumssonar, Páls J. Árdals, Ara Jónssonar, Tómasar Jónssonar og fleiri. Með tilkomu Samkomuhússins árið 1907 batnaði öll aðstaða til leiksýninga til mikilla muna og smám saman komst aukin festa á leikstarfið, einkum eftir stofnun Leikfélags Akureyrar árið 1917, en það hefur starfað óslitið síðan. Á sýningunni er mikið myndefni frá sýningum þess, auk þess sem sagt er frá helstu burðarásum leikstarfsins.  Þá eru nokkur sýnishorn af leikmunum og búningum frá L.A. og á myndskjá verða sýnd brot úr gömlum upptökum frá sýningum félagsins. Það er Leikminjasafn Íslands sem stendur fyrir sýningunni. Textahöfundar eru Sveinn Einarsson, Jón Viðar Jónsson og Ólafur Engilbertsson, en hönnun sýningarinnar er í höndum Ólafs Engilbertssonar, Björns G. Björnssonar og Jóns Þórissonar. Sérstakur ráðgjafi vegna sýningarinnar er Haraldur Sigurðsson. Sýningin stendur til 10. mars og er opin á sama tíma og Amtsbókasafnið

Nýjast