Syngjandi börn um allan bæ

Líkt og venjulega á öskudaginn, lifnaði heldur betur yfir bæjarlífinu á Akureyri snemma í morgun. Yngstu bæjarbúarnir rifu sig á fætur fyrir allar aldir, klæddu sig í hina ýmsu búninga, máluðu sig í framan með aðstoð þeirra fullorðnu og héldu út í daginn í misjafnlega stórum hópum.  

Börnin heimsóttu fyrirtæki og stofnanir, sungu fyrir starfsfólk og viðskiptavini og fengu að launum sælgæti í poka og sitthvað fleira. Búningar barnanna voru af öllum gerðum og þá var greinilegt að þau höfðu lagt misjafnlega mikið á sig við undirbúning og söngæfingar.

Nýjast