17. febrúar, 2010 - 21:52
Líkt og venjulega á öskudaginn, lifnaði heldur betur yfir bæjarlífinu á Akureyri snemma í morgun. Yngstu bæjarbúarnir rifu sig á
fætur fyrir allar aldir, klæddu sig í hina ýmsu búninga, máluðu sig í framan með aðstoð þeirra fullorðnu og héldu
út í daginn í misjafnlega stórum hópum.
Börnin heimsóttu fyrirtæki og stofnanir, sungu fyrir starfsfólk og viðskiptavini og fengu að launum sælgæti í poka og sitthvað fleira.
Búningar barnanna voru af öllum gerðum og þá var greinilegt að þau höfðu lagt misjafnlega mikið á sig við undirbúning og
söngæfingar.