Sundlaugin á Þelamörk í Hörgárbyggð verður formlega tekin í notkun aftur föstudaginn 9. janúar kl. 14.30, eftir umfangsmiklar endurbætur sem gerðar hafa verið á henni undanfarna mánuði. Allir eru velkomnir en klippt verður á borða, vígslu-sundspretturinn tekinn og boðið upp á veitingar.
Sundlauginni var lokað í lok júní sl. vegna framkvæmdanna, en hún var svo opnuð til reynslu 10. desember sl. Helstu verkþættir endurbótanna voru:
o nýtt hita- og klórstýringarkerfi og hreinsibúnaður fyrir sundlaug, heita potta, vaðlaug og lendingarlaug, þ.e. sér kerfi fyrir hvern stað
o öryggiskerfi með eftirlitsmyndavélum í sundlaugarkar
o jöfnunartankar fyrir hvern stað og sameiginlegur klórtankur
o nýjar lagnir að sundlaug og frá henni
o dúkur innan í sundlaugarkar
o nýtt gufubaðshús
o tveir nýir heitir pottar
o upplýsingarskjár í afgreiðslu