10. september, 2008 - 12:13
Fréttir
Stjórnsýslunefnd Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja til við bæjarstjórn, að á árinu 2009
verði þremur milljónum króna varið til stuðnings við stjórnmálaflokka og stjórnmálasamtök sem eiga fulltrúa í
bæjarstjórn Akureyrar.
Upphæðin skiptist hlutfallslega eftir kjörfylgi þeirra. Stjórnsýslunefnd fjallaði jafnframt um samþykkt bæjarstjórnar 11. desember 2007
í samræmi við ákvæði laga nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra
þar sem samþykkt var að verja á árinu 2008 kr. 2.000.000 til stuðnings við stjórnmálaflokka og stjórnmálasamtök sem
fulltrúa eiga í bæjarstjórn Akureyrar. Upphæðin skiptist hlutfallslega eftir kjörfylgi þeirra.