Stöðug aukning í blóð- og krabbameinsmeðferðum hjá SAk

Starfsfólk almennu göngudeildarinnar ásamt stjórnar- og starfsmönnum KAON við nýju stólana og borðin…
Starfsfólk almennu göngudeildarinnar ásamt stjórnar- og starfsmönnum KAON við nýju stólana og borðin. Myndir frá Kaon

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis afhenti formlega á dögunum almennu göngudeildinni á SAk þrjá meðferðarstóla og þrjú hliðarborð. Mikil aukning hefur orðið í blóð- og krabbameinsmeðferðum undanfarin ár og stefnir í að svo verði áfram.

„Þessi viðbót er afar mikilvæg fyrir starfsemina. Þær lyfjameðferðir sem eru gefnar á deildinni eru mjög mismunandi langar, allt frá einni klukkustund og upp í átta klukkustundir og því er afar mikilvægt að hafa góða stóla. Stólarnir sem félagið færði deildinni eru sömu gerðar og deildin er með í notkun og eru því nú 16 slíkir stólar til á deildinni ásamt tveimur Lazyboy stólum. Þessir meðferðarstólar eru afar góðir og öruggir og tryggja að öryggiskröfur séu uppfylltar t.d. ef bráðatilvik koma upp,“ segir Inga Margrét Skúladóttir deildarstjóri á almennu göngudeildinni í tilkynningu frá Kaon . Hún er þakklát félaginu fyrir rausnarlega gjöf sem stuðlar að betri aðstöðu fyrir skjólstæðinga og starfsfólk deildarinnar.

 Mikilvægt fyrir  sjúklinginn og starfsfólk

„Það er mikið ánægjuefni fyrir stjórn að geta lagt göngudeildinni lið með því að félagið gefi þessa þrjá meðferðastóla ásamt borðum, ekki síst í ljósi þess að meðferðum er stöðugt að fjölga. Það tekur á að vera í lyfjagjöf, sem getur tekið einhverja klukkutíma í einu. Þá er mikilvægt að sjúklingurinn sé í þar til gerðum stól sem hægt að stilla eftir þörfum. Stólarnir og borðin eru líka mikilvægir til að skapa góða vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk, sem þarf þá t.d. ekki að bogra yfir sjúklingnum við að setja upp nál. Sjálfur hef ég verið reglulegur viðskiptavinur göngudeildar í nokkur ár og hef því séð hvar skórinn kreppir,“ segir Pétur Þór Jónasson formaður Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Pétur Þór formaður félagsins mátar sig í nýja stólinn


Athugasemdir

Nýjast