Samherji er alþjóðlegur matvælaframleiðandi. Stoðir rekstrarins eru traustar og í mörgum löndum. Mikil hagræðing hefur
orðið hjá fyrirtækinu undanfarin ár og verulega bætt afkoma erlendrar starfsemi styrkir okkur til að takast á við þau verkefni sem við
stöndum frammi fyrir í breyttu rekstrarumhverfi, segir í frétt á vefsíðu félagsins.
Allt frá árinu 2006 hefur íslenska krónan verið mjög sterk og óhagstæð útflutningsgreinum. Við þessar
aðstæður hefur Samherji hægt á fjárfestingum, selt eignir og hagrætt í rekstrinum. Því er fyrirtækið undir það
búið að mæta þeim erfiðleikum sem nú steðja að. Undanfarnar vikur hefur síðan verið unnið sleitulaust að því að
aðlaga reksturinn að breyttum aðstæðum hér á landi og á mörkuðum okkar erlendis. Helstu viðfangsefni á því sviði
tengjast greiðsluflæði til og frá fyrirtækinu og samstarfsfyrirtækjum þess.
Staðan á heimsmarkaði er vissulega viðkvæm og í raun getur enginn sagt til um þróunina næstu mánuði. Núverandi staða Samherja
er þó sterk og félagið í stakk búið til að standa af sér þá erfiðleika sem að steðja, segir ennfremur á
vefsíðu Samherja.