Spretta fer feikivel af stað og lofar góðu fyrir sumarið

Repjuakurinn er þegar orðinn gulur og fallegur og hefur vaxið um allt að einn metra í vor.  Mynd Sig…
Repjuakurinn er þegar orðinn gulur og fallegur og hefur vaxið um allt að einn metra í vor. Mynd Sigurgeir

Spretta fór feikivel af stað í blíðskaparveðrinu og má gera ráð fyrir að uppskera verði með betra móti þó aldrei sé hægt að spá fyrir um það svo snemma vors hvernig sumarið muni á endanum líta út.

Bændur á Klauf eru með 8 hektara lands á leigu á Ytri-Gili þar sem Sigurgeir býr og rækta þar repju til olíuframleiðslu. Hún fer vel af stað og akurinn þegar orðinn gulur og fallegur og hefur vaxið um allt að einn metra í vor. „Þetta lítur vel út núna og mér finnst líklegt að uppskera verði góð.“

Algengast að komi einn til tveir góðir dagar

Sigurgeir hefur legið yfir hitatölum og er með gagnasafn sem nær frá árinu 1967 til 2024, eða yfir tæplega 60 ára tímabil. Skoðaði hann hitatölur fyrir maí mánuði og segir að á þessum tíma hafi hiti í helmingi áranna aldrei farið yfir 18 gráður. Þar fyrir utan er algengast er að einn til tveir góðir dagar í maí mælist með svo háan hita.

Alls 6 sinnum á tímabilinu voru 3 dagar með 18 gráðu hita, 2 sinnum náði hitinn að verða svo hár í 4 daga og árið 2017 kom hlýindakafli sem bauð upp á 18 gráður í 5 daga, en það gerðist einnig árið 1987.

Mikill munur á maí 1979 og 1980

Maí mánuður árið 1980 var góður, frekar kalt var að sögn Sigurgeirs framan af en þegar á leið fór að hlýna og frá 10.til 24. maí náði hitinn yfir 18 gráður í alls 9 daga. Hlýjasti maí dagur á þessu tímabili var 22. maí árið 1980 var 24,6 gráður.

Það voru mikil umskipti frá árinu áður, en vorið 1979 var heldur kalt, alls bauð sá mánuður upp á 13 daga með ýmis slyddu eða snjókomu. Það er kaldasti maímánuður norðan heiða frá upphafi mælinga.

Hlýjasti maí mánuðurinn var árið 1991 þegar meðalhiti var 8,8 gráður. Árin 1980, 2008 og 2017 voru um og yfir 8 gráður í meðalhita á Akureyri. „Þessi hlýindakafli er orðin nokkuð langur en enn vitum við ekki hvernig maí kemur út í heildina,“ segir Sigurgeir.

Nýjast