Sótt um lóð fyrir KFC veitinga- stað miðsvæðis á Akureyri

Á fundi skipulagsnefndar Akureyrar í vikunni, var tekið fyrir erindi frá Helga Vilhjálmssyni f.h. KFC ehf. þar sem óskað er eftir lóð fyrir veitingastað, sem þarf að vera 2000-3000 fermetrar, vera sjáanleg og miðsvæðis í bænum. Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu málsins.  

KFC er stærsta veitingahúsakeðja í kjúklingabitum í heiminum, með um 10.000 veitingastaði í 76 löndum. Á Íslandi eru sjö KFC veitingastaðir, í Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjanesbæ, Selfossi og tveir í Reykjavík.

Nýjast