Eflaust munu margir nýta veðurblíðuna til sundferða. Mynd/Þröstur Ernir
Búast má við blíðskapar veðri um mest allt land í dag samkvæmt Veðurstofunni. Útlit er fyrir að það verði víða léttskýjað og fremur hægur vindur. Í kvöld má búast við að það þykkni upp á Suðvestur- og Vesturlandi. Hitastig í dag verður á bilinu tíu til 18 stig, hlýjast sunnanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur jafnframt fram að á morgun verði sunnan kaldi og rigning, en yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands. Þar verður líka hlýjast, hiti 15 til 18 stig í eftirmiðdaginn. Gert er ráð fyrir smáskúrum og mildu veðri á fimmtudag, en á föstudag er útlit fyrir suðaustanátt með rigningu á Suður- og Vesturlandi.
Á laugardag: Suðvestlæg átt og víða skúrir. Heldur kólnandi veður.
Á sunnudag: Norðvestlæg átt og rigning, en stöku skúrir sunnan- og vestanlands. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast syðst.
Á mánudag: Vestlæg átt, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt.
Það hefur ítrekað komið fram að VMA býr við mikinn húsnæðisvanda. Skólinn er þétt setinn og því þarf að kenna nokkra áfanga í þröngum og ófullnægjandi rýmum.
Norræna félagið á Norðurlandi býður almenningi á opinn kynningarfund um starfsemi Vestnorræna ráðsins miðvikudaginn 2. september kl. 17:00 á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Akureyrarvaka fór fram um liðna helgi og lukkaðist vel, fjölmargir viðburðir voru í boði um vítt og breytt um bæinn og lét fólk sig ekki vanta þó vissulega hefði vel mátt vera aðeins hlýrra þegar líða tók á.
Hilmar Friðjónsson var á ferð og flugi með myndavélar sínar og hann tók myndinar sem hér fylgja.
Tekjur atNorth ehf., sem heldur utan um starfsemi atNorth á Íslandi, námu 72,3 milljónum Bandaríkjadala árið 2025 og jukust um rúm 96 prósent frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 25,9 milljónum dala, samanborið við 2,3 milljónir dala árið 2024. Reksturinn skilaði jafnframt jákvæðri EBIT afkomu upp á 6,1 milljón dala eftir 13 milljóna dala tap árið áður.
À haustin falla til haustverkin. Þau geta verið ýmiskonar. Á meðan sumir ná síðustu tuggunum í rúllur, gera klárt fyrir að setja fé á hús, smala og rétta taka aðrir upp uppskeru sumarsins, misgóða eins og gerist og gengur. Sumir fara í berjamó og á meðan sumir njóta þess að tína upp í sig eru aðrir sem tína kílóavís. Kennarar gera klárt fyrri komandi vetur, námsáætlanir og hina ýmsu lista sem verða jú að liggja fyrir. Og foreldrar yfirfara innkaupalista skóladóts og útifatnað barna. Allt þarf jú að vera klárt fyrir komandi vetur!
Nýtt norrænt samstarf í iðjuvísindum hefur skapað mikilvægan grunn fyrir eflingu framhaldsnáms í iðjuþjálfun á Íslandi. Með þátttöku Háskólans á Akureyri í verkefninu OSNord stendur nú bæði stúdentum og starfandi iðjuþjálfum til boða aukið framboð námskeiða á meistarastigi og ný tækifæri til alþjóðlegrar samvinnu.
Um eitt hundrað manns komu saman við Skautahöllina á Akureyri fyrir viku og gengu eða hlupu til stuðnings hlaupurum Reykjavíkurmaraþonsins til minningar og áheita í málstað Sólveigar Huldu og barnabarns hennar litlu Sólveigar Huldu.