Eflaust munu margir nýta veðurblíðuna til sundferða. Mynd/Þröstur Ernir
Búast má við blíðskapar veðri um mest allt land í dag samkvæmt Veðurstofunni. Útlit er fyrir að það verði víða léttskýjað og fremur hægur vindur. Í kvöld má búast við að það þykkni upp á Suðvestur- og Vesturlandi. Hitastig í dag verður á bilinu tíu til 18 stig, hlýjast sunnanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur jafnframt fram að á morgun verði sunnan kaldi og rigning, en yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands. Þar verður líka hlýjast, hiti 15 til 18 stig í eftirmiðdaginn. Gert er ráð fyrir smáskúrum og mildu veðri á fimmtudag, en á föstudag er útlit fyrir suðaustanátt með rigningu á Suður- og Vesturlandi.
Á laugardag: Suðvestlæg átt og víða skúrir. Heldur kólnandi veður.
Á sunnudag: Norðvestlæg átt og rigning, en stöku skúrir sunnan- og vestanlands. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast syðst.
Á mánudag: Vestlæg átt, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt.
Viðbygging við leikskólann Krummafót á Grenivík eru langt komin. Hún er Hún er nálægt 150 fermetrum að stærð og mun hýsa alla starfsmannaaðstöðu, stoðþjónustu, fundar- og samkomuaðstöðu.
Tryggvi Jóhannsson formaður Einingar Iðju bregst í harðorðri yfirlýsingu á heimasíðu félagsins ókvæða við fréttum af fyrirhugaðri hækkun á gjaldskrá Norðurorku um næstu áramót.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt nýja lýðheilsustefnu sveitarfélagsins. Stefnan miðar að því að íbúar njóti góðrar heilsu og vellíðunar á öllum æviskeiðum.
Allt mitt líf er á misskilningi byggt. Ég slæ þessu fram því ég er heyrnarskert. Stundum er ekki heill þráður í tilsvörum mínum. Þeir sem þekkja mig vita það. Þeir sem þekkja mig ekki geta lent í vandræðum þegar þeir fara að spjalla við mig. Ég svara kannski einhverju út í bláinn eða þreyti þá með viðstöðulausu tali...þá þarf ég ekki að misskilja það sem þeir segja.
Ástin dró Þóru Soffíu Gylfadóttur til Raufarhafnar og þar hefur hún fundið efnivið í bæði handverk og sögur. Með verkefninu Hannað við heimskautsbaug vill hún skapa muni sem tengjast staðnum og með heimildarmyndinni Arfi sem lifir áfram, varðveita minningar fólks frá síldarárunum.
NorðurHjálp hefur það sem af er ári veitt einstaklingum og fjölskyldum í neyð bónuskort til matarinnkaupa fyrir yfir 20 milljónir króna. Þá hefur fjöldi fólks fengið aðstoð í formi húsgagna, fatnaðar og matvæla úr matarhorni NorðurHjálpar.
Tæknifræðideild HA/HR fékk á dögunum handverkfæri að gjöf frá Verkfærasölunni. Verkfærin munu nýtast í nýrri verklegri aðstöðu deildarinnar við Háskólann á Akureyri og styðja við verklega kennslu og verkefnavinnu nemenda.
Rannsóknamiðstöð ferðamála við Háskólann á Akureyri hefur lokið tveggja ára Erasmus+ verkefninu UPLIFT sem miðar að því að efla notkun gagnvirkrar tækni og frásagna í ferðaþjónustu.
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti á fundi sínum 26. september að setja á laggirnar nýtt nám í Kennslu íslensku sem annars máls við Kennaradeild. Námið svarar vaxandi þörf fyrir sérhæfingu kennara í fjöltyngdu skólasamfélagi.