Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt nýja lýðheilsustefnu sveitarfélagsins. Stefnan miðar að því að íbúar njóti góðrar heilsu og vellíðunar á öllum æviskeiðum.
Öll starfsemi sveitarfélagsins hefur áhrif á heilsu og líðan íbúa og því er mikilvægt að móta verklag sem tryggir að lýðheilsa sé höfð að leiðarljósi við ákvarðanatöku og áætlanagerð til framtíðar.
Meginmarkmið stefnunnar er að byggja upp heilsueflandi og fjölskylduvænt samfélag þar sem umhverfi og þjónusta styðja við heilbrigða lifnaðarhætti, góða heilsu og vellíðan allra íbúa.