NorðurHjálp hefur úthlutað bónuskortum fyrir 20 milljónir króna á árinu

Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir hjá NorðurHjálp   Mynd Axel Darri
Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir hjá NorðurHjálp Mynd Axel Darri

NorðurHjálp hefur það sem af er ári veitt einstaklingum og fjölskyldum í neyð bónuskort til matarinnkaupa fyrir yfir 20 milljónir króna. Þá hefur fjöldi fólks fengið aðstoð í formi húsgagna, fatnaðar og matvæla úr matarhorni NorðurHjálpar.

Þörfin fyrir aðstoð hefur verið mikil og fer vaxandi. Í júní á þessu ári voru bónuskort afhent fyrir um fjórar milljónir króna, sem er það mesta sem NorðurHjálp hefur veitt í einum mánuði síðan starfsemin opnaði. Í ágúst voru bónuskort veitt fyrir um 3,8 milljónir króna.

„Það er auðvitað ótrúlega ánægjulegt að geta aðstoðað svona marga, en á sama tíma vitum við að þörfin er mikil og við sjáum hana aukast. Fólk hefur einfaldlega minna á milli handanna og það er sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að láta enda ná saman,“ segir Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir, ein þeirra sem standa að NorðurHjálp.

Sjálfboðaliðastarf frá upphafi

NorðurHjálp var stofnuð í október 2023 og hefur frá upphafi byggt starf sitt á öflugu sjálfboðaliðastarfi. Fjöldi sjálfboðaliða á breiðu aldursbili leggur þar fram krafta sína og enginn fær greitt fyrir vinnu sína.

Nytjamarkaðurinn að Óseyri 18 á Akureyri er meginstoð starfseminnar. Þangað berst stöðugt mikið magn af fatnaði, húsgögnum, búsáhöldum, leikföngum og öðrum nytjahlutum sem fólk gefur NorðurHjálp og fær þannig nýtt líf.

„Við erum hundrað prósent á því að við erum með bestu viðskiptavinina. Fólk gefur okkur svo vandaða og góða hluti og er líka duglegt að koma og versla hjá okkur,“ segir Sæunn.

Allur ágóði af sölunni er nýttur til að styðja fólk sem á erfitt og hefur NorðurHjálp í gegnum starf sitt getað veitt einstaklingum og fjölskyldum mikilvæga aðstoð.

Aðstoðin er meira en bónuskort

Þrátt fyrir að bónuskortin séu stærsti hluti starfseminnar, er það þó aðeins einn hluti af hjálparstarfi NorðurHjálpar. Samtökin gefa einnig húsgögn og fatnað til fólks sem þarf á aðstoð að halda og reka matarhorn og frískáp þar sem gríðarlegt magn af matvælum fer í gegn.

„Við reynum að hjálpa eftir bestu getu og eftir því sem við höfum tök á. Stundum er það bónuskort sem skiptir mestu máli, stundum er það rúm, sófi, fatnaður á börnin eða matur. Það getur verið ótrúlega mikilvægt að geta fengið eitthvað af þessu þegar fjárhagsstaðan er erfið,“ segir Sæunn.

Á bak við þessa starfsemi er umfangsmikið sjálfboðaliðastarf. Sjálfboðaliðar taka á móti varningi, flokka, verðleggja, stilla upp í versluninni, afgreiða viðskiptavini, sinna matarhorninu og keyra út og sækja húsgögn og annan varning sem fólk gefur.

Hátt í sjö milljónir í rekstrarkostnað það sem af er ári

Þrátt fyrir að öll vinna sé unnin í sjálfboðavinnu fylgir starfseminni talsverður rekstrarkostnaður. NorðurHjálp greiðir meðal annars leigu, hita og rafmagn auk kostnaðar við rekstur bifreiðar samtakanna, sem notuð er til að sækja og flytja húsgögn og annan varning.

Sá kostnaður hefur numið um sjö milljónum króna það sem af er ári.

„Það er auðvitað blóðugt fyrir okkur að sjá svona stóran hluta af þeim fjármunum sem við náum að skapa fara í húsnæði, hita, rafmagn og rekstur á bílnum. Við myndum auðvitað helst vilja nota hverja einustu krónu í að kaupa fleiri bónuskort og hjálpa fólki. En þetta er kostnaður sem fylgir því að halda starfseminni gangandi,“ segir Sæunn.

Jólamánuðirnir framundan

Þrátt fyrir að NorðurHjálp hafi þegar veitt bónuskort fyrir yfir 20 milljónir króna á árinu eru enn nokkrir mánuðir eftir af árinu, þar á meðal jólamánuðirnir, þegar útgjöld heimilanna aukast jafnan verulega.

„Við vitum að erfiðustu mánuðir ársins eru framundan. Jólin eru dýr tími fyrir öll heimili og fyrir þá sem eru nú þegar að berjast við að ná endum saman getur desember verið sérstaklega þungur. Við viljum geta haldið áfram að aðstoða og jafnvel aukið hjálpina ef við getum,“ segir Sæunn.

NorðurHjálp leitar því áfram eftir stuðningi frá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem vilja leggja starfseminni lið.

„Við reynum að sækja styrki þar sem við getum og erum ótrúlega þakklát fyrir allan þann stuðning sem við höfum fengið. Án samfélagsins værum við ekki að geta gert þetta. Hver einasta gjöf, stór eða smá, skiptir máli og hjálpar okkur að koma meiri aðstoð til þeirra sem þurfa á henni að halda.“ Fólk getur líka stutt NorðurHjálp með því að koma og versla í nytjamarkaðnum á Óseyri. Með því að kaupa fatnað, húsgögn, búsáhöld eða annað á markaðnum er verið að styðja beint við hjálparstarfið. Þeir sem eiga hluti sem þeir þurfa ekki lengur geta sömuleiðis gefið þá NorðurHjálp og þannig gefið þeim nýtt líf um leið og þeir leggja góðu málefni lið.

„Við tökum við öllu sem fólk vill gefa okkur og komum því í verð. Þó hluturinn hafi lokið hlutverki sínu á einu heimili getur hann eflaust haldið áfram annars staðar,“ segir Sæunn.

Þeir sem vilja styðja starfsemi NorðurHjálpar geta einnig lagt frjáls framlög inn á reikning samtakanna.

kt: 530422 1270 Reikningsnr: 0133 - 15 - 007703

Nýjast