Tæknifræðideild HA/HR fékk á dögunum handverkfæri að gjöf frá Verkfærasölunni. Verkfærin munu nýtast í nýrri verklegri aðstöðu deildarinnar við Háskólann á Akureyri og styðja við verklega kennslu og verkefnavinnu nemenda.
Gjöfin er kærkomið framlag til uppbyggingar tæknifræðinámsins á Akureyri, þar sem stúdentar fá tækifæri til að tengja fræðilega þekkingu við hagnýt viðfangsefni.
Brynjar Sveinsson Lyngmo stúdent í tæknifræði orðar þetta vel; „ Verkfærin munu nýtast vel í nýrri verklegri aðstöðu deildarinnar við HA og koma að góðum notum fyrir nemendur í verklegri kennslu og verkefnavinnu. Stuðningur fyrirtækja í heimabyggð skiptir deildina miklu máli og hjálpar okkur að efla verklega kennslu og skapa nemendum enn betri aðstöðu til náms. Við þökkum Verkfærasölunni kærlega fyrir rausnarlegan stuðning og velvilja í garð Tæknifræðideildar HA/HR.“
Mikilvægt að eiga í góðu samtali við atvinnulífið
Nám í iðnaðar- og orkutæknifræði hefur verið í boði á Akureyri frá haustinu 2023 í samstarfi HA og Háskólans í Reykjavík.
„Það skiptir okkur miklu máli að eiga gott og stöðugt samtal við atvinnulífið. Þannig fáum við innsýn í þarfir fyrirtækjanna og getum tengt námið betur við þau verkefni sem bíða nemenda að námi loknu. Stuðningur á borð við þessa gjöf hjálpar okkur að efla verklega kennslu og skapa stúdentum enn betri aðstöðu,“ segir Ólafur Jónsson, verkefnastjóri tæknifræðideildar hjá háskólanum.

Ólafur Jónsson, verkefnastjóri tæknifræðideildar hjá háskólanum.
Með samstarfinu geta einstaklingar stundað tæknifræðinám í heimabyggð, með áherslu á hagnýta þekkingu og tengsl við atvinnulíf á Norðurlandi.
