Nýtt fræðsluefni opnar ný tækifæri í ferðaþjónustu

Mynd  UNAK
Mynd UNAK

Rannsóknamiðstöð ferðamála við Háskólann á Akureyri hefur lokið tveggja ára Erasmus+ verkefninu UPLIFT sem miðar að því að efla notkun gagnvirkrar tækni og frásagna í ferðaþjónustu.

Verkefnið var unnið í samstarfi við aðila frá fimm Evrópulöndum og hefur skilað fjölbreyttu fræðsluefni fyrir ferðaþjónustuaðila, kennara og nemendur. Meðal efnisins eru fræðslumyndbönd, vinnustofur og verkfærakistur sem sýna hvernig nýta má meðal annars sýndarveruleika (VR), aukinn veruleika (AR) og QR-kóða til að skapa áhugaverðari upplifun fyrir gesti.

Áhersla verkefnisins er að slíkar lausnir séu einfaldar í framkvæmd og krefjist þess ekki að nýttur sé dýr búnaður. Allt fræðsluefni UPLIFT er nú aðgengilegt almenningi á vef verkefnisins og getur nýst við þróun nýrra hugmynda í ferðaþjónustu.

Nýjast