Allt mitt líf er á misskilningi byggt. Ég slæ þessu fram því ég er heyrnarskert. Stundum er ekki heill þráður í tilsvörum mínum. Þeir sem þekkja mig vita það. Þeir sem þekkja mig ekki geta lent í vandræðum þegar þeir fara að spjalla við mig. Ég svara kannski einhverju út í bláinn eða þreyti þá með viðstöðulausu tali...þá þarf ég ekki að misskilja það sem þeir segja.
Þar sem ég lifi og hrærist í heimi hinna fullheyrandi finnst mér þessi niðurstaða mín fullkomlega rökrétt og ég get rakið öll mín bestu og verstu augnablik til misskilnings vegna slakrar heyrnar. Henni get ég ekki breytt og ég veit síst allra hvað ég misskil eða heyri ekki. Þá er nú gott að geta metið og skynjað lífið á mínum forsendum.
Ég segi oft „Ekki reyna að móðga mig.“ Þeir sem heyra bara hálfa heyrn þurfa nefnilega stöðugt að geta í eyðurnar. Ég áttaði mig svo á fyrir nokkrum árum að ég túlka allt sem ég heyri á sem besta mögulegan hátt, mér í vil. Ef ég heyri eitthvað sem hentar mér ekki eða það hljómar eins og einhver leiðindi, þá mun ég klárlega „misskilja“. Kannski er réttast að segja að ég heyri bara það sem ég vil heyra.
Mér finnst þetta ágætis veganesti út í lífið. Því þó ég þurfi að geta í eyðurnar, þá þýðir það ekki að ég þurfi að túlka það sem sagt er á versta mögulegan máta. Hinn kosturinn er miklu betri og það þarf svo sem ekki heyrn til að vita að það er óþarfi að búa til leiðindi úr misskilningi.
