Söguganga um Innbæinn og Fjöruna á Akureyri

Hvert er elsta hús Akureyrar? Af hverju eru mörg hús í Innbænum kennd við danska kaupmenn? Þessum spurningum og ásamt mörgum fleirum verður svarað í gönguferð Minjasafnsins á Akureyri um Innbæinn og Fjöruna á Akureyri á morgun, laugardag, kl 14:00.

Húsin og umhverfið í elsta bæjarhluta Akureyrar geymir margar sögur sem Hörður Geirsson, sérfræðingur Minjasafnsins á Akureyri, miðlar í sögugöngunni. Eftir gönguna er tilvalið að koma við á Minjasafninu á Akureyri og líta við á sýningunni Akureyri - bærinn við Pollinn. Gengið verður frá Laxdalshúsi, Hafnarstræti 11, og tekur gangan um eina og hálfa klukkustund. Gangan er létt og hentar öllum. Ekkert þátttökugjald og allir velkomnir, segir á vef Dags.

Nýjast