Slökkviliðsmenn komu roskinni konu til hjálpar

Slökkviliðsmenn á Akureyri komu roskinni konu til hjálpar í gærkvöld, áður en hún skaðaðist af reyk, sem lagði um íbúð hennar og fram á stigagang fjölbýlishússins. Stúlka sem býr við ganginn fann reykjarlykt og kallaði slökkvilið á vettvang. Konan hafði verið að baka brauð og lagt það á eldavélina en uggði ekki að því að straumur var á hellunni. Gekk hún svo til náða og vaknaði við slökkviliðsmennina, sem reykræstu íbúðina. Þetta kemur fram á fréttavef Vísis.

Nýjast